Fara í meginmál

Starfssvið

Gervigreind og tækniréttur

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Gervigreind og tækniréttur

Gervigreind og tækniréttur er ört vaxandi réttarsvið sem snertir þróun, innleiðingu og notkun nýrrar tækni í rekstri fyrirtækja og hjá hinu opinbera. Mörkin lögmannsstofa veitir fyrirtækjum, frumkvöðlum, fjárfestum og opinberum aðilum ráðgjöf um lögfræðileg álitaefni sem tengjast gervigreind, stafrænum lausnum og nýsköpun.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað reglur um gervigreind, persónuvernd, höfundarétt og önnur hugverkaréttindi, ábyrgð vegna sjálfvirkra kerfa, samningsgerð vegna þróunar og innleiðingar tæknilausna, gagnanýtingu og samspil við ESB/EES-regluverk á borð við AI Act, persónuverndarreglur og stafræna markaði.

Mörkin lögmannsstofa aðstoðar við mat á lagalegri áhættu, innleiðingu regluvörslu, gerð innri verklagsreglna og samninga við tæknifyrirtæki, þjónustuaðila og samstarfsaðila. Sérstök áhersla er lögð á að ráðgjöfin sé hagnýt og styðji við ábyrgð og samkeppnishæfni fyrirtækja við innleiðingu nýrrar tækni.

Einnig er sinnt hagsmunagæslu og málum þar sem reynir á ábyrgð, persónuvernd, hugverkarétt eða samningsleg álitaefni í tengslum við stafræna þjónustu og gervigreindarkerfi.

Markmiðið er að veita skýra og framsýna ráðgjöf sem gerir viðskiptavinum kleift að nýta tæknina á öruggan og lögmætan hátt, án þess að missa sjónar á rekstrarlegum markmiðum og nýsköpun.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • AI Act og annað tækniregluverk
  • Gervigreindarstefnur og regluvarsla
  • Persónuvernd og gagnastjórnun
  • Samningar um þróun og innleiðingu hugbúnaðar
  • Hugverkaréttur, gögn og ábyrgð vegna gervigreindar