Um okkur
Mörkin lögmannsstofa byggir á áratuga reynslu af lögmannsstörfum og lögfræðilegri ráðgjöf fyrir fyrirtæki, opinberar stofnanir og einstaklinga.
Við sameinum fjölþætta reynslu, fagleg vinnubrögð og víðtæka sérþekkingu til að veita skýra og trausta lögfræðiþjónustu.

Traust lögfræðiþjónusta í meira en hálfa öld.
Mörkin lögmannsstofa var stofnuð árið 1975 af Gesti Jónssyni. Frá þeim tíma hefur stofan þróast í öfluga lögmannsstofu sem veitir ráðgjöf og þjónustu á fjölbreyttum sviðum lögfræðinnar.
Viðskiptavinir okkar eru fyrirtæki, opinberir aðilar, stéttarfélög og einstaklingar, bæði hér á landi og erlendis. Þótt verkefnin séu ólík að umfangi og eðli byggir þjónustan ávallt á sömu meginreglum, vandaðri greiningu, skýrri ráðgjöf og faglegri framkvæmd.
Hjá stofunni starfa reynslumiklir lögmenn með víðtæka þekkingu á ólíkum réttarsviðum. Við veitum viðskiptavinum okkar alhliða lögfræðiþjónustu sem tekur mið af þörfum hvers verkefnis.
Eigendur stofunnar
Mörkin lögmannsstofa er í dag í eigu tíu lögmanna sem hafa með fjölbreyttri reynslu og sérþekkingu komið að uppbyggingu og þróun stofunnar.
Fólkið á bak við stofuna
Hjá Mörkinni lögmannsstofu starfar öflugur hópur lögmanna, löglærðra fulltrúa, ráðgjafa og starfsfólks sem tryggir faglega þjónustu og skilvirkan rekstur.
Löglærðir fulltrúar
Lögfræðilegir ráðgjafar
Rekstur og stoðþjónusta
Viðurkenningar og alþjóðlegt samstarf
Störf lögmanna Markarinnar lögmannsstofu hafa hlotið viðurkenningu alþjóðlegra matsfyrirtækja á ýmsum sviðum lögfræðinnar.
Stofan er jafnframt aðili að SCG Legal, alþjóðlegu samstarfsneti sjálfstæðra lögmannsstofa og hefur þar með aðgang að öflugu alþjóðlegu samstarfsneti lögmannsstofa um allan heim.
- SCG Legal

- Chambers Europe Ranked

- The Legal 500

- Framúrskarandi fyrirtæki 2025

