Fara í meginmál

Starfssvið

Greiðslustöðvun, nauðasamningar og gjaldþrotaskipti

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Greiðslustöðvun, nauðasamningar og gjaldþrotaskipti

Þegar fjárhagsleg vandræði koma upp skiptir miklu máli að bregðast skjótt og af yfirvegun við. Mörkin lögmannsstofa sinnir ráðgjöf og hagsmunagæslu á öllum stigum, hvort sem um er að ræða greiðslustöðvun, nauðasamning eða gjaldþrotaskipti.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað mat á fjárhagsstöðu, undirbúning beiðni um greiðslustöðvun eða nauðasamning, samskipti við kröfuhafa, samningaviðræður um endurskipulagningu skulda og samspil við dómstóla.

Mörkin lögmannsstofa gætir hagsmuna kröfuhafa við gjaldþrotaskipti og opinber skipti dánarbúa, og veitir ráðgjöf þegar reynir á forgangsröðun krafna, riftanir og umsýslu eigna.

Á sviði gjaldþrotaréttar er sinnt málflutningi og ráðgjöf sem snertir ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda, samningsgerð í tengslum við slit og samspil við fjármálastofnanir.

Markmiðið er að viðskiptavinir fái skýra yfirsýn yfir mögulegar leiðir og afleiðingar þeirra, og að ráðgjöfin styðji við bestu mögulegu lendingu á erfiðum tíma.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Undirbúningur greiðslustöðvunar
  • Nauðasamningar og endurskipulagning
  • Hagsmunagæsla kröfuhafa
  • Skipti þrotabúa
  • Riftanir og forgangskröfur