Fara í meginmál

Starfssvið

Málflutningur fyrir almennum dómstólum og gerðardómum

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Málflutningur fyrir almennum dómstólum og gerðardómum

Málflutningur er kjarninn í starfsemi stofunnar og þvert á réttarsvið sinnir hún málum fyrir héraðsdómi, Landsrétti, Hæstarétti og gerðardómum. Áhersla er lögð á vandaðan undirbúning, skýra framsetningu og þrautseigju í málflutningi.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Mörkin lögmannsstofa sinnir málflutningi í einkamálum og sakamálum, þar á meðal viðamiklum efnahags- og fjármunabrotamálum, ágreiningi um samninga, skaðabótamálum, stjórnsýslumálum og málum sem snerta hagsmuni fyrirtækja.

Áhersla er lögð á að málin séu undirbúin frá fyrstu stigum, þar sem greining á sönnunarstöðu og málsástæðum mótar skýra stefnu áður en mál er höfðað eða því svarað.

Á sviði gerðardómsmála sinnir Mörkin lögmannsstofa bæði málflutningi og setu í gerðardómum, og hefur reynslu af málum sem rekin eru jafnt eftir innlendum sem alþjóðlegum reglum.

Markmiðið er að ráðgjöfin og málflutningurinn nýtist viðskiptavinum sem öflugt tæki til að ná fram réttindum sínum, hvort sem leiðin liggur til samkomulags, sáttar eða dóms.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Einkamál fyrir almennum dómstólum
  • Sakamál og vörn í refsimálum
  • Stjórnsýslukærur og dómsmál
  • Gerðardómsmál
  • Áfrýjun til Landsréttar og Hæstaréttar