Fara í meginmál

Starfssvið

Stjórnsýsluréttur

Umhverfismynd fyrir starfssvið: Stjórnsýsluréttur

Ákvarðanir stjórnvalda hafa veruleg áhrif á einstaklinga og fyrirtæki. Mörkin lögmannsstofa veitir ráðgjöf um stjórnsýslureglur, undirbúning ákvarðana og hagsmunagæslu þegar ákvörðun er kærð eða borin undir dómstóla.

Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað leyfismál, þátttöku í opinberum innkaupum, mat á rétti til opinberrar þjónustu, samskipti við úrskurðarnefndir og kvartanir til umboðsmanns Alþingis.

Mörkin lögmannsstofa sinnir málum sem snerta stjórnvaldsákvarðanir á sviði velferðarmála, atvinnurekstrar, opinberra starfsmanna, byggingar- og skipulagsmála, sem og á sviði eftirlits.

Áhersla er lögð á að mál séu undirbúin með skipulegum hætti og að málskot byggi á efnislegum sjónarmiðum sem styðjast við stjórnsýslulög og málefnaleg rök.

Markmiðið er að ákvarðanir séu reistar á réttum forsendum og að einstaklingar og fyrirtæki hafi raunhæfar leiðir til endurskoðunar þegar svo er ekki.

Viðfangsefni geta meðal annars varðað

  • Leyfismál og opinber innkaup
  • Kærur til úrskurðarnefnda
  • Kvartanir til umboðsmanns Alþingis
  • Mál fyrir dómstólum gegn stjórnvöldum
  • Ráðgjöf til stjórnvalda