Starfssvið
Vinnuréttur

Vinnuréttur snertir bæði fyrirtæki og starfsfólk í daglegu starfi og á tímamótum. Mörkin lögmannsstofa sinnir ráðgjöf um ráðningarsamninga, starfsumhverfi og ágreiningsmál sem rísa milli vinnuveitenda og starfsmanna.
Sérhæfð þjónusta og reynsla

Ráðgjöfin getur meðal annars varðað gerð og endurskoðun ráðningarsamninga, samkeppnis- og þagnarskylduákvæði, breytingar á starfskjörum, ráðgjöf við uppsagnir og lok ráðningar.
Mörkin lögmannsstofa sinnir málum þar sem reynir á ólögmæta uppsögn, samspil við kjarasamninga, áreitnimál, fæðingarorlof og samskipti við stéttarfélög.
Á sviði atvinnurekstrar er sinnt ráðgjöf við stærri skipulagsbreytingar, hópuppsagnir og samskipti við trúnaðarmenn og samstarfsnefndir.
Markmiðið er að ráðgjöfin sé hagnýt þannig að fyrirtæki geti tekið ákvarðanir um starfsmannamál með skýrri yfirsýn og að starfsmenn hafi raunhæfar leiðir til að gæta réttinda sinna þegar á reynir.
Viðfangsefni geta meðal annars varðað
- Ráðningarsamningar og starfskjör
- Uppsagnir og starfslok
- Samspil við kjarasamninga
- Áreitni og einelti á vinnustað
- Skipulagsbreytingar og hópuppsagnir




